Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. janúar 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Þorsteinn Jóhannsson í ÍR (Staðfest)
Mynd: ÍR
Varnarmaðurinn Þorsteinn Jóhannsson hefur gengið til liðs við ÍR í 2. deildinni.

Þorsteinn skrifaði undir tveggja ára samning hjá félaginu.

Hinn 23 ára gamli Þorsteinn hefur æft með liði ÍR að undanförnu.

Þorsteinn hefur alla tíð spilað með Sindra, og var fastamaður og jafnframt fyrirliði liðsins síðasta sumar.

,,Við ÍR ingar erum mjög spenntir að fá þennan fjölhæfa leikmann til liðs við okkur og bindum miklar vonir við hann," sagði Arnar Þór Valsson þjálfari ÍR.
Athugasemdir
banner
banner