Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. febrúar 2015 14:30
Magnús Már Einarsson
Coutinho og Henderson hvíldir í kvöld
Coutinho skoraði frábært mark gegn Southampton um síðustu helgi.
Coutinho skoraði frábært mark gegn Southampton um síðustu helgi.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho og Jordan Henderson verða ekki með Liverpool gegn Besiktas í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Coutinho er hvíldur eftir að hafa byrjað 19 leiki í röð síðan í desember. Henderson er aftur á móti að glíma við smávægileg meiðsli á ökkla.

Steven Gerrard er einnig ennþá frá keppni auk þess sem Lazar Markovic tekur út leikbann.

Lucas, Mamadou Sakho, Jose Enrique, Jon Flanagan og Glen Johnson eru einnig frá keppni vegna meiðsla og veikinda.

Líklegt er að Martin Skrtel verði með fyrirliðabandið í Tyrklandi kvöld en Liverpool leiðir 1-0 eftir fyrri leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner