Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. febrúar 2015 15:38
Elvar Geir Magnússon
Di Maria sagður sjá eftir því að hafa farið til Man Utd
Angel Di Maria.
Angel Di Maria.
Mynd: Getty Images
Argentínski landsliðsmaðurinn Angel Di Maria hefur viðurkennt við félaga sína hjá Real Madrid að hann sjái eftir því að hafa farið til Manchester United.

Þetta segir spænski fjölmiðlamaðurinn Manuel ‘Manolete’ Esteban en hann var í viðtali í fótboltaþætti i heimalandinu.

Fréttunum skal taka með fyrirvara enda segir Esteban ekki hverjar heimildir sínar séu.

Eftir góða byrjun á Old Trafford hefur dregið undan Di Maria sem var keyptur á tæpar 60 milljónir punda frá Real Madrid í sumar.

Þessum 27 ára leikmanni hefur aðeins tekist að skora fjögur mörk í öllum keppnum síðan hann kom frá Real.
Athugasemdir
banner
banner
banner