Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 26. febrúar 2015 12:00
Elvar Geir Magnússon
Jese ósáttur
Jese vill spila meira.
Jese vill spila meira.
Mynd: Getty Images
Spænskir fjölmiðlar segja að Jese sé ósáttur við lítinn spiltíma eftir að hann kom til baka úr meiðslum. Hann ku vilja fara frá Real Madrid.

Jese kom til baka eftir slæm hnémeiðsli í desember en hann varð fyrir meiðslunum í mars.

Jese var víst mjög pirraður þegar hann fékk aðeins 25 sekúndur gegn Elche eftir að hafa eytt megninu af seinni hálfleik í upphitun.

Þessi 22 ára framherji gæti verið lánaður á næsta tímabili.

Carlo Ancelotti, stjóri Real, hefur oft hrósað Jese en AS segir að leikmaðurinn vilji spila meira og sé tilbúinn að yfirgefa höfuðborg Spánar til að fá meiri spiltíma.
Athugasemdir
banner
banner