Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 26. febrúar 2017 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Cantona: Mourinho er sigurvegari
Mourinho er að fara vinna í dag segir Cantona.
Mourinho er að fara vinna í dag segir Cantona.
Mynd: Getty Images
Eric Cantona, fyrrum leikmaður Man Utd og ein af goðsögnum félagsins hefur mikla trú á Mourinho við stjórnvölin hjá Man Utd.

„Ég held að United muni vinna fleiri en einn bikar á þessu tímabili og sá fyrsti verður deildarbikarinn. Mourinho er sigurvegari, hann hefur unnið margt í gegnum tíðina og hann er frábær þjálfari"

„Hann hefur verið í þessum bransa í mörg ár, hann hefur þjálfað mörg frábær félög og unnið eitthvað hjá þeim öllum, og hann hefur alltaf bætt liðin."

Svo hann mun vinna. Þeir munu vinna úrslitaleikinn, engar áhyggjur!," sagði Cantona.

Úrslitaleikur Manchester United og Southampton fer fram á Wembley í dag og hefst klukkan 16:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner