Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. febrúar 2017 19:02
Magnús Már Einarsson
Carrick: Þetta er stórt fyrir okkur
Carrick fagnar í dag.
Carrick fagnar í dag.
Mynd: Getty Images
„Við vorum ekki upp á okkar besta. Þetta var stórkostlegur leikur. Stundum ná bæði lið að loka á hvort annað en í dag létu þau bæði vaða," sagði Michael Carrick eftir 3-2 sigur Manchester United á Southampton í úrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

„Að vinna er það eina sem skiptir máli og vonandi hjálpar þetta okkur í framhaldinu."

Zlatan Ibrahimovic skoraði sigurmarkið á 87. mínútu en hann setti tvö mörk í leiknum í dag.

„Fólk spyr spurninga og hefur efasemdir um Zlatan en að spila svona marga leiki eins og hann er gerir er magnað."

„Hann vann titilinn fyrir okkur. Það er erfitt að útskýra hversu stórt þetta er. Enski bikarinn í fyrra var stór og þetta var líka stórt í dag. Ég finn það."

Athugasemdir
banner