Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 26. febrúar 2017 22:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Chelsea með arftaka Courtois í huga
Verður Oblak næsti markvörður Chelsea?
Verður Oblak næsti markvörður Chelsea?
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur verið lengi á eftir Thibaut Courtois, markverði Chelsea og Chelsea veit af því.

Chelsea er tilbúið til þess að setja háan verðmiða á Courtois því þeir telja sig vera búnir að finna arftaka Belgans.

Það er Slóveninn, Jan Oblak, markvörður Atletico Madrid.

Talið er að Chelsea muni setja 85 milljón punda verðmiða á Courtois og myndi sá peningur muni duga til þess að kaupa Oblak og annan góðan leikmann.

Oblak er aðeins 24 ára en hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Slóveníu árið 2012.
Athugasemdir
banner
banner
banner