Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. febrúar 2017 19:11
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Einkunnir Man Utd og Southampton: Zlatan maður leiksins
Zlatan var valinn maður leiksins
Zlatan var valinn maður leiksins
Mynd: Getty Images
Manchester United tryggði sér deildabikarinn í dag eftir frábæran leik gegn Southampton á Wembley.

Leikurinn fór 3-2 og reyndist Zlatan Ibrahimovic hetja Man Utd en hann skoraði tvö mörk í leiknum, og sigurmarkið ásamt því að vera valinn maður leiksins.

Manolo Gabbiadini átti flottann leik fyrir Southampton en hann skoraði bæði mörk Southampton, ásamt því að skora löglegt mark sem var dæmt af vegna rangstöðu.

Man Utd tryggði sér fyrsta titilinn á tímabilinu en þetta var fimmti deildabikarinn sem félagið sigrar. Þá var þetta í fjórða sinn sem Jose Mourinho, stjóri Man Utd sigrar bikarinn en þetta er í fyrsta sinn sem stjóri Man Utd sigrar titil á sínu fyrsta tímabili.

Hér má sjá einkunnagjöf Goal.com:

Einkunnir Manchester United: De Gea - 7, Bertrand - 7, Smalling - 7, Rojo - 5, Mata - 5, Pogba - 6, Lingard - 7, Valencia - 7, Herrera - 7, Martial - 7, Zlatan - 8
(Varamenn: Carrick - 7, Fellaini - 6, Rashford - 6)

Einkunnir Southampton: Forster - 6, Bertrand - 7, Cédric - 7, Yoshida - 7, Stephens - 7, Davis - 6, Tadic - 6, Ward-Prowse - 7, Redmond - 7, Romeu - 5, Gabbiadini - 7
(Varamenn: Boufal - 4, Rodriguez - 6
Athugasemdir
banner
banner