Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. febrúar 2017 13:45
Kristófer Kristjánsson
Ítalía: Sampdoria bjargaði stigi á lokamínútunni
Fabio Quagliarella bjargaði stigi fyrir Sampdoria
Fabio Quagliarella bjargaði stigi fyrir Sampdoria
Mynd: Getty Images
Palermo 1 - 1 Sampdoria
1-0 Ilija Nestorovski ('31 , víti)
1-1 Fabio Quagliarella ('90 )

Palermo tók á móti Sampdoria í fyrsta leik dagsins á Ítalíu.

Palermo er sem stendur í fallsæti og virtist því vera að krækja í afar mikilvæg þrjú stig eftir að Ilija Nestorovski kom liðinu yfir úr vítaspyrnu.

Sampdoria menn voru þó á öðru máli og jöfnuðu metin í blálokin þökk sé marki Fabio Quagliarella.

Palermo er í 18. sæti með 15 stig eftir 26 umferðir, sjö stigum frá öruggu sæti. Sampdoria er hinsvegar í 10. sæti, með 35 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner