Gabriel Jesus, leikmaður Manchester City segist verða tilbúinn eftir tvo mánuði en hann fótbrotnaði þann 13. febrúar í leik gegn Bournemouth.
Hann fór strax til Barcelona eftir leikinn til þess að fara í aðgerð.
Strax komu upp vangaveltur hvort að tímabilið hans væri lokið vegna meiðslanna en hann kom til Manchester City í janúar frá Palmeiras.
Jesus lék sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu í september og hefur skorað 5 mörk í 6 leikjum. Þá byrjaði hann feikna vel fyrir Man City og hefur skorað þrjú mörk í þremur byrjunarliðsleikjum.
„Hvenær kem ég aftur? Eftir tvo mánuði," sagði Jesus á samfélagsmiðlum
Athugasemdir