Manchester United varð í kvöld deildabikarmeistari eftir 3-2 sigur á Southampton á Wembley.
Með sigrinum tryggði Man Utd sér enn einn titilinn í sögu félagsins en nú hafa þeir unnið 42 titla.
Með sigrinum í kvöld tók Man Utd fram úr Liverpool í titlafjölda á Englandi fyrir leikinn höfðu bæði lið unnið 41 titil.
Man Utd hefur unnið 20 deildartitla, 12 bikara, 5 deildabikara, 3 Evróputitla og 2 Heimsmeistaratitla.
Liverpool hefur unnið 18 deildartitla, 7 bikara, 8 deildabikara, Meistaradeild Evrópu 5 sinnum og Evrópudeildina 3 sinnum
Athugasemdir