Það er ljóst af hverju Juan Mata, leikmaður Manchester United, var ekki í hópnum sem ferðaðist til London í gær.
Stuðningsmenn United höfðu áhyggjur af því að Mata var ekki sjáanlegur í hópnum sem var á leið í úrslitaleik deildabikarsins. United mætir Southampton á Wembley í dag.
Stuðningsmenn United höfðu áhyggjur af því að Mata var ekki sjáanlegur í hópnum sem var á leið í úrslitaleik deildabikarsins. United mætir Southampton á Wembley í dag.
Jose Mourinho gaf Mata sérstakt leyfi til að ferðast til Spánar þar sem afi hans var jarðsunginn.
Mata flaug svo með einkaþotu til London í gærkvöldi og verður tilbúinn í úrslitaleikinn.
Athugasemdir