Barcelona sigraði stórleikinn gegn Atletico Madrid í dag og var þetta 400. sigur Lionel Messi með Barcelona.
Messi skoraði sigurmarkið á 86. mínútu en sigurinn kom Barcelona á toppinn í spænsku úrvalsdeildinni.
Þetta var í 277. skiptið sem Messi er í sigurliðinu í úrvalsdeildinni en alls hefur hann verið 400. sinnum í sigurliði í 566 leikjum.
Messi er 29 ára en hann lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona árið 2003 en það var gegn Porto.
Í þessum 566 leikjum hefur Messi aðeins tapað 64 leikjum, gert 102 jafntefli og sigrað 400. sinnum
Athugasemdir