Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. febrúar 2017 19:14
Magnús Már Einarsson
Zlatan svaraði Pogba í viðtali: Ég kom frítt
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic var hetja Manchester United í úrslitum enska deildabikarsins í kvöld en hann skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins.

Eftir leik fór Zlatan í viðtal hjá Sky Sports ásamt Paul Pogba.

„Þetta er ástæðan fyrir því að við keyptum hann," sagði Paul Pogba um Zlatan í viðtalinu.

Svíinn er vanur því að svara fyrir sig og hann var ekki lengi að minna Pogba á að ekkert kaupverð var í spilunum. Zlatan kom frítt til United eftir að samningur hans hjá PSG rann út.

„Keyptu mig? Ég kom frítt. Þeir keyptu þig," sagði Zlatan.

Zlatan og Pogba hlógu síðan báðir eins og sjá má hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner