Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. mars 2015 09:26
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá Astana í Kasakstan
Aron Einar varð pabbi í morgun
Icelandair
Aron Einar Gunnarsson er orðinn pabbi. Til hamingju!
Aron Einar Gunnarsson er orðinn pabbi. Til hamingju!
Mynd: Fotbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska landsliðsins varð pabbi í morgun en honum og unnustu hans fæddist sonur.

Unnusta hans Kristbjörg Jónasdóttir átti barnið í Wales þar sem þau búa.

Aron Einar er sjálfur í Kasakstan á fullu í undirbúningi undir landsleik þjóðanna í undankeppni EM 2016 sem fer fram á laugardaginn klukkan 15:00.

Hann kom degi síðar til Kasakstan en aðrir leikmenn liðsins og fær hvíld seinni partinn í dag.

Þá á fyrrverandi fyrirliði liðsins, Eiður Smári Guðjohnsen von á barni með konu sinni á næstu dögm en hann er einnig í Kasakstan með íslenska liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner