Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 26. mars 2015 16:09
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið U21 árs landsliðsins - Kristján Flóki byrjar
Kristján Flóki Finnbogason byrjar í dag
Kristján Flóki Finnbogason byrjar í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 árs landslið Íslands mætir Rúmeníu í vináttulandsleik ytra klukkan 17:30 en Eyjólfur Sverrisson, þjálfari liðsins, er búinn að velja byrjunarliðið.

Kristján Flóki Finnbogason, sem hefur mikið verið í umræðunni eftir skipti hans aftur í FH, er í byrjunarliðinu.

Samúel Kári Friðjónsson, Aron Elís Þrándarson, Elías Már Ómarsson og Oliver Sigurjónsson eru einnig í byrjunarliðinu í dag. Hægt er að sjá liðið í heild sinni hér fyrir neðan.

Byrjunarlið íslenska liðsins:

Markvörður: Rúnar Alex Rúnarsson

Hægri bakvörður: Adam Örn Arnarsson

Vinstri bakvörður: Daníel Leó Grétarsson

Miðverðir: Orri Sigurður Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson

Tengiliðir: Oliver Sigurjónsson og Gunnar Þorsteinsson

Hægri kantur: Elías Már Ómarsson

Vinstri kantur: Aron Elís Þrándarson

Framherjar: Kristján Flóki Finnbogason og Árni Vilhjálmsson
Athugasemdir
banner
banner
banner