Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. mars 2015 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Danny Rose sá fimmti sem dregur sig úr enska hópnum
Mynd: Getty Images
Danny Rose, vinstri bakvörður Tottenham Hotspur, var í gær fimmti landsliðsmaður Englands til að draga sig úr leikmannahópnum fyrir landsleikina gegn Litháen og Ítalíu.

Auk Danny Rose var það Luke Shaw, vinstri bakvörður hjá Manchester United, sem hætti við þátttöku vegna meiðsla.

Fraser Forster, markvörður Southampton, er frá út tímabilið vegna meiðsla og tveir leikmenn Liverpool eru eftir heima, þeir Daniel Sturridge og Adam Lallana.

England er með fullt hús stiga á toppi E-riðils undankeppni EM. Litháen er í 4. sæti riðilsins eftir sigra gegn Eistum og San Marínó, en er með jafn mörg stig og Slóvenía og Sviss sem eru í 2-3. sæti með jafn mörg stig og Litháar.
Athugasemdir
banner
banner
banner