Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 26. mars 2015 21:00
Magnús Már Einarsson
Heimir Hallgríms: Erum yfirleitt á undan öllum í svona hlutum
Icelandair
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Kasakstan og Íslands á laugardag fer fram innandyra á gervigrasi enda er mikið frost ytra þessa dagana. Heimir Hallgrímsson, annar af landsliðsþjálfurum Íslands, ræddi um gervigrasið í sjónvarpsþætti Fótbolta.net á ÍNN í kvöld.

,,Þetta er ólíkt því sem okkar leikmenn eiga að venjast," sagði Heimir.

,,Margir leikmenn íslenska landsliðsins hafa jafnvel aldrei spilað á gervigrasi. Það var ein af þeim ástæðum að við ákváðum að fara snemma til Kasakstan til að aðlagast aðstæðum."

,,Við erum kannski brenndir frá því í U21 árs leiknum okkar í Kasakastan þar sem að tvö mörk komu þar sem að menn kunnu ekki í völlinn. Við ætlum að reyna að brenna okkur ekki á því."

Heimir segist búast við að fleiri landslið og félagslið muni spila á gervigrasi í framtíðinni.

,,Þetta er að verða algengara og algengara í Svíþjóð og Noregi. Það er sérstakt að við skulum vera á eftir. Við erum yfirleitt á undan öllum í svona hlutum. Þetta er óhjákvæmilega framtíðin. Þetta gras er alltaf að verða betra og betra svo ég hræðist ekki þessa þróun."

,,Íslensk lið fá sjaldan að æfa á heimavellinum sínum, sem er fáránlegt. Með því að setja gervigras, þá getur heimaliðið æft á vellinum. Oft á tíðum er heimavöllurinn eins og útivöllur fyrir leikmenn heimaliðsins því að þeir fá aldrei að fara inn á völlinn."

Hér að ofan má sjá viðtalið við Heimi í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner