Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 26. mars 2015 14:00
Mate Dalmay
Instagram leikur Carlsberg
Meðal vinninga eru miðar á leik Íslands gegn Tékklandi í sumar.
Meðal vinninga eru miðar á leik Íslands gegn Tékklandi í sumar.
Mynd: Carlsberg
Carlsberg einn helsti bakhjarl Tólfunnar, stuðningsmannaliðs Íslenska landsliðsins í knattspyrnu hefur sett af stað leik í tengslum við leik Íslands gegn Kasakstan í undankeppni EM 2016 sem fer fram í Kasakstan á laugardaginn.

Hægt er að taka þátt í leiknum með því að birta mynd af Carlsberg á Instagram og merkja hana með #carlsbergisl eða tippa á leikinn á þar til gerða miða sem fást fyrir hvern keyptan Carlsberg á Ölver, Bjarna Fel, Glaumbar eða RIO Sportbar fram að leik og á meðan honum stendur.

Eftir leik verða vinningshafar dregnir út og verða fjölmargir glæsilegir vinningar í boði.

Meðal vinninga eru miðar á leik Íslands og Tékklands á Laugardalsvelli, 3ja lítra flöskur af Carlsberg og fleira.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner