Það eru fjórir leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í dag þar sem tveir leikir fara fram í A-deild og tveir í C-deild.
Grótta mætir KR á Seltjarnarnesi hálftíma áður en viðureign Fjölnis og Fram fer fram í Egilshöll. Báðir leikir eru í 2. riðli A-deildarinnar.
Grótta mætir KR á Seltjarnarnesi hálftíma áður en viðureign Fjölnis og Fram fer fram í Egilshöll. Báðir leikir eru í 2. riðli A-deildarinnar.
Grótta getur komið sér í þriðja sæti riðilsins með sigri á nágrönnunum í KR, sem eru tveimur stigum ofar en búnir með auka leik.
Fjölnir mætir stigalausu liði Fram og getur náð þriðja sæti með sigri, á meðan Framarar þurfa sigur til að eiga von um að enda ekki í neðsta sæti.
Vatnaliljur mæta Erninum í Fagralundi og að leik loknum á Stál-úlfur leik gegn Skallagrími.
A-deild riðill 2:
18:30 Grótta - KR (Vivaldivöllurinn)
19:00 Fjölnir - Fram (Egilshöll)
C-deild riðill 1:
21:00 Stál-úlfur - Skallagrímur (Fagrilundur)
C-deild riðill 2:
19:15 Vatnaliljur - Örninn (Fagrilundur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir