Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. mars 2015 21:30
Daníel Freyr Jónsson
Marquinhos framlengir hjá PSG
Marquinhos.
Marquinhos.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Marquinhos hefur framlengt samning sinn hjá PSG til ársins 2019.

Þessi brasilíski miðvörður gekk í raðir PSG frá Roma árið 2013, en hann er einungis tvítugur að aldri og þykir einn efnilegasti miðvörðurinn í Evrópu í dag.

Mörg félög hafa sýnt áhuga á Marquinhos en ljóst er að hann er í miklum metum hjá frönsku meisturunum sem ákváðu að framlengja samning hans um eitt ár.

Marquinhos hefur spilað 39 leiki með PSG á þessum tveimur árum og hefur hann skorað í þeim þrjú mörk. Þá á hann að baki fjóra leiki með brasilíska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner