Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fim 26. mars 2015 12:30
Magnús Már Einarsson
Schneiderlin fer ef Southampton nær ekki Meistaradeildarsæti
Vill spila í Meistaradeildinni.
Vill spila í Meistaradeildinni.
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin ætlar að fara frá Southampton ef liðið nær ekki Meistaradeildarsæti í vor.

Schneiderlin vildi fara til Tottenham í fyrrasumar en á endanum varð ekkert úr þeim félagaskiptum.

,,Í ágúst vildi ég fara en félagið hafði misst of marga leikmenn til að geta samþykkt að láta mig fara," sagði Schneiderlin.

,,Síðan þá hef ég rætt við forráðamenn félagsins og ég vil spila á meðal þeirra bestu. Það er mikilvægt að fá loksins að spila í Meistaradeildinni þegar maður er orðinn 25 ára."

,,Southampton gæti náð Meistaradeildarsæti og þá verð ég mögulega áfram, hver veit. Ég hef hins vegar ekki áhuga á að vera fyrir framan sjónvarpið á þriðjudags og miðvikudagskvöldum."

Athugasemdir
banner
banner
banner