Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 26. mars 2015 20:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
Swansea lánar Tiendalli til Middlesbrough (Staðfest)
Dwight Tiendalli á æfingu.
Dwight Tiendalli á æfingu.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Dwight Tiendalli er genginn í raðir Middlesbrough frá Swansea á lánssamningi.

Þessi hollenski varnarmaður mun spila með Boro í Championship-deildinni út leiktíðina, en hann hafði einungis komið við sögu í sex leikum á tímabilinu með Swansea.

Tiendalli er 29 ára gamall og spilar sem bakvörður. Hann mun núna hjálpa Middlesbrough í að komast aftur í ensku úrvalsdeildina, en liðið er í 3. sæti og einungis stigi frá toppsætinu í Championship-deildinni.

Fyrr í vikunni gekk miðvörðurinn Fernando Amorebieta til liðs við Boro frá Fulham.
Athugasemdir
banner
banner
banner