Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. mars 2015 19:33
Daníel Freyr Jónsson
U21: Tap gegn Rúmenum í æfingaleik
Eyjólfur Sverrisson stýrir U21 landsliðinu.
Eyjólfur Sverrisson stýrir U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Rúmenía 3 - 0 Ísland
1-0 Petrescu (´9)
2-0 Aleandru Mitrita ('48)
3-0 Puscas ('51)

Íslenska U-21 landslið karla lá fyrir Rúmenum í æfingaleik sem fram fór ytra nú í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Rúmena.

Staðan var 1-0 þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik, en markið skoraði framherjinn Puscas.

Mark frá Alexandru Mitrita og annað frá Puskas komu Rúmenum í 3-0 á fyrstu 6 mínútu síðari hálfleiks, en ekkert frekar var skorað í leiknum.

Byrjunarlið Íslands: Rúnar Alexander Rúnarsson, Adam Örn Arnarsson, Daníel Leó Grétarsson, Orri Sigurður Ómarsson, Samúel Kári Friðjónsson, Oliver Sigurjónsson, Gunnar Þorsteinsson, Elías Már Ómarsson, Aron Elís Þrándarson, Kristján Flóki Finnbogason, Árni Vilhjálmsson
Athugasemdir
banner
banner