Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. mars 2015 16:35
Magnús Már Einarsson
Xavi gerir risasamning í Katar
Nóg til.
Nóg til.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Xavi mun fara frá Barcelona eftir tímabilið og ganga í raðir Al Sadd í Katar.

Spænska íþróttablaðið AS greinir frá þessu í dag.

Xavi mun gera þriggja ára samning við Al Sadd og fá 30 milljónir evra fyrir það.

Hann fær 10 milljónir evra að auki ef hann ákveður að taka slaginn í fjögur ár með Al Sadd.

Xavi er 35 ára gamall en hann ætlar að afla sér þjálfararéttinda á sama tíma og hann spilar í Katar.
Athugasemdir
banner
banner
banner