sun 26. apríl 2015 20:41
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Öruggt hjá Napoli - Fiorentina tapaði
Gonzalo Higuain skoraði tvö
Gonzalo Higuain skoraði tvö
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í ítalska boltanum í kvöld en Fiorentina tapaði á meðan Napoli vann nokkuð örugglega.

Fiorentina tapaði fyrir Cagliari 1-3. Duje Cop kom gestunum yfir áður en hann bætti við öðru marki um miðjan síðari hálfleik.

Alberto Gilardino minnkaði muninn fyrir Fiorentina áður en Diego Farias gerði út um leikinn á 90. mínútu.

Napoli fór þá illa með Sampdoria, 4-2. Hlutirnir byrjuðu ekki vel hjá Napoli en Raul Albiol gerði sjálfsmark áður en liðið tók við sér. Gonzalo Higuain skoraði tvö mörk fyrir Napoli og þá gerðu þeir Lorenzo Insigne og Manolo Gabbiadini eitt mark hvor. Luis Muriel gerði eitt mark fyrir Sampdoria undir lokin.

Leikir dagsins:

Fiorentina 1 - 3 Cagliari
0-1 Duje Cop ('7 )
0-2 Duje Cop ('59 )
1-2 Alberto Gilardino ('74 )
1-3 Diego Farias ('90 )

Napoli 4 - 2 Sampdoria
0-1 Raul Albiol ('12 , sjálfsmark)
1-1 Manolo Gabbiadini ('31 )
2-1 Gonzalo Higuain ('34 )
3-1 Lorenzo Insigne ('47 )
4-1 Gonzalo Higuain ('81 , víti)
4-2 Luis Muriel ('89 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner