Borussia Dortmund vann góðan 2-0 sigur á Frankfurt í þýsku Bundesligunni í gær.
Fyrra mark liðsins kom úr vítaspyrnu sem Pierre-Emerick Aubameyang framkvæmdi.
Það var ekki stressinu fyrir að fara hjá þessum ofur hraðskreiða Gabon-manni en Aubameyang var silkislakur á punktinum og skoraði með svokallaðri Panenka vítaspyrnu.
Þetta var tuttugasta og fyrsta mark kappans í vetur en hann hefur verið einn af ljósu punktunum hjá Dortmund á þessu tímabili.
Myndband af vítinu má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir