Watford tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Watford vann 2-0 útisigur á Brighton í hádeginu en þurfti að treysta á að Middlesbrough og Norwich myndu tapa stigum í leikjum sínum sem fóru fram klukkan 14.
Fór svo að Middlesbrough tapaði 4-3 fyrir Fulham á meðan Norwich gerði 1-1 jafntefli við Rotherham.
Þegar þetta kom í ljós voru leikmenn Watford komnir upp í rútu og lagðir af stað heim á leið frá Brighton.
Mikill fögnuður braust út í rútunni og setti Miguel Layun, leikmaður Watford þetta myndband á Twitter síðu sína í gær.
GRACIAS DIOS, una vez mas puedo decir que no es solo fútbol!! @watfordfcsays somos de #PremierLeague 🙌🏻👏🏻 pic.twitter.com/vRk6eSQIXb
— Miguel Layun (@Miguel_layun) April 25, 2015
Athugasemdir