þri 26. apríl 2016 21:28
Elvar Geir Magnússon
Reynir vann KR í vítaspyrnukeppni
Reynismenn unnu KR.
Reynismenn unnu KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld fór fram minningarleikur um Magnús Þórðarson. Leikurinn var á grasi í Sandgerði þar sem heimamenn í Reyni, sem leika í 3. deild, tóku á móti KR.

KR var með sterkt byrjunarlið sem lék fyrri hálfleikinn en ekkert var skorað í honum.

Reynir komst í 1-0 í upphafi seinni hálfleiks þegar Slóveninn Tomislav Misura, sem nýlega kom til Reynis frá Grindavík, skoraði.

Eftir um klukkutíma leik jafnaði KR úr vítaspyrnu en það mark skoraði hinn efnilegi Atli Hrafn Andrason.

Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 1-1 og því gripið til vítaspyrnukeppni og þar höfðu Reynismenn betur.

KR-ingar hefja leik í Pepsi-deildinni á mánudagskvöld þegar liðið leikur gegn Víkingi Reykjavík.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner