Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. apríl 2017 18:02
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Crystal Palace og Tottenham: Sakho snýr aftur
Benteke og Sakho byrja báðir.
Benteke og Sakho byrja báðir.
Mynd: Getty Images
Klukkan 19 mætast Crystal Palace og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en heimamenn eiga í miklum meiðslavandræðum. James Tomkins gæti verið úr leik út tímabilið vegna alvarlegra ökklameiðsla og Scott Dann er einnig meiddur.

Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport og Tottenham stillir upp gríðarlega öflugu byrjunarliði. Wanyama kemur inn í byrjunarliðið fyrir Son.

Tottenham er í öðru sæti og getur saxað á forskot Chelsea en Crystal Palace er sjö stigum fyrir ofan fallsæti.

Mamadou Sakho snýr aftur í byrjunarlið Palace en hann mátti ekki taka þátt í sigurleiknum gegn Liverpool þar sem hann er á láni frá Liverpool.

Byrjunarlið Crystal Palace: Hennessey, Ward, Kelly, Sakho, Schlupp, Milivojevic, Puncheon, McArthur, Zaha, Townsend, Benteke.

Byrjunarlið Tottenham: Lloris (f), Walker, Dier, Alderweireld, Vertonghen, Davies, Wanyama, Dembele, Eriksen, Dele, Kane.



Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner