Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 26. apríl 2017 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Við viljum ekki fá Dele Alli
Alli er ekki á leið til Man City.
Alli er ekki á leið til Man City.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola segir að stjóri Tottenham, Mauricio Pochettino geti verið rólegur - hann ætli ekki að kaupa Dele Alli til Manchester City.

Fyrr í vikunni sagði Xavi, fyrrum leikmaður Guardiola hjá Barcelona, það að hinn 21 árs gamli Alli væri akkúrat þannig leikmaður sem Guardiola myndi vilja fá til City. Þetta var Pochettino ekki sáttur með.

Alli hefur verið frábær fyrir Tottenham og þetta tímabil hefur verið einstaklega gott. Hann hefur skorað 20 mörk í öllum keppnum.

„Mauricio Pochettino verður að vera rólegur. Dele Alli verður hans leikmaður á næsta tímabili, ég er nokkuð viss um það," sagði Guardiola sem ætlar greinilega ekki að kaupa Alli.

„Við viljum ekki Dele Alli. Hann er frábær leikmaður og góður fyrir enskan fótbolta. Hann er baráttuhundur og einn besti leikmaður sem ég hef séð, en við viljum ekki fá hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner