Barcelona 7 - 1 Osasuna
1-0 Lionel Andres Messi ('12 )
2-0 Andre Gomes ('30 )
2-1 Roberto Torres ('48 )
3-1 Andre Gomes ('57 )
4-1 Lionel Andres Messi ('61 )
5-1 Paco Alcacer ('64 )
6-1 Javier Mascherano ('67 , víti)
7-1 Paco Alcacer ('86 )
1-0 Lionel Andres Messi ('12 )
2-0 Andre Gomes ('30 )
2-1 Roberto Torres ('48 )
3-1 Andre Gomes ('57 )
4-1 Lionel Andres Messi ('61 )
5-1 Paco Alcacer ('64 )
6-1 Javier Mascherano ('67 , víti)
7-1 Paco Alcacer ('86 )
Barcelona keyrði yfir Osasuna í fyrsta leik dagsins í spænsku úrvarlsdeildinni. Börsungar ætla sér ekki að gefast upp í baráttunni um titilinn og eru í stuði eftir sigur í El Clasico.
Lionel Messi, hetjan í El Clasico á sunnudag, hóf veisluna með fyrsta marki leiksins á 12. mínútu. Andre Gomes bætti við öðru marki eftir hálftíma leik, en hann hefur verið gagnrýndur harðlega.
Í upphafi seinni hálfleiks náði Roberto Torres að minnka muninn fyrir Osasuna og héldu þá margir að þeir væru komnir aftur inn í leikinn; svo varð hins vegar alls ekki.
Andre Gomes setti annað mark sitt á 57. mínútu og fjórum mínútum síðar bætti Messi við öðru marki sínu, 4-1 fyrir Barca.
Nokkrir lykilmenn fengu hvíld hjá Barcelona, þar á meðal Luis Suarez og Andres Iniesta og þá var Neymar í banni. Það stöðvaði þá hins vegar ekki í dag. Þeir rúlluðu yfir Osasuna.
Messi var tekinn af velli eftir annað markið, en án hans tókst Börsungum að setja þrjú mörk til viðbótar. Paco Alcacer, annar leikmaður sem hefur verið gagnrýndur, skoraði tvisvar og Javier Mascherano skoraði úr vítaspyrnu.
Lokatölur 7-1 fyrir Barcelona sem er núna þremur stigum á undan Real Madrid. Real á tvo leiki til góða, annan þeirra spila þeir í kvöld.
Athugasemdir