Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. apríl 2017 20:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýski bikarinn: Dembele skaut Dortmund í bikarúrslit
Dortmund kom til baka og vann Bayern!
Dembele fagnar hér marki sínu.
Dembele fagnar hér marki sínu.
Mynd: Getty Images
Bayern München 2 - 3 Borussia Dortmund
0-1 Marco Reus ('19 )
1-1 Javi Martinez ('28 )
2-1 Mats Hummels ('41 )
2-2 Pierre-Emerick Aubameyang ('69 )
2-3 Ousamane Dembele ('74 )

Það verða Borussia Dortmund og Eintracht Frankfurt sem spila í úrslitum þýsku bikarkeppninnar þetta árið. Dortmund mætti erkifjendum sínum í Bayern München í kvöld.

Dortmund komst yfir á 19. mínútu þegar Marco Reus skoraði. Reus er í fantaformi eftir að hafa komið til baka úr meiðslum.

Javi Martinez jafnaði fyrir Bayern níu mínútum síðar og rétt fyrir hálfleik skoraði Mats Hummels gegn sínum gömlu félögum og sá til þess að Bæjarar færu með forystu inn í leikhlé.

Þeir gulklæddu ætluðu sér ekki að tapa þessum leik! Þeir töpuðu gegn Bayern um daginn og þeir ætluðu ekki að gera það aftur.

Markamaskínan Pierre-Emerick Aubameyang jafnaði metin fyrir Dortmund og fimm mínútum síðar skoraði hinn bráðefnilegi Ousmane Dembele og tryggði Dortmund farmiðann í bikarúrslit.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner