„Benzema var settur inn á undan honum og það eitt og sér er áhyggjuefni. Benzema hefur ekkert fram að færa. Þetta er áhyggjuefni fyrir hann," segir Steven Gerrard um stöðu Gareth Bale hjá Real Madrid.
Bale var á bekknum þegar Real vann 2-1 útisigur gegn Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Bale var á bekknum þegar Real vann 2-1 útisigur gegn Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Gerrard var í settinu hjá BT Sport í kringum leikinn í gær, ásamt Frank Lampard og Rio Ferdinand.
Bale hefur átt í vandræðum með meiðsli og stöðugleika síðustu þrjú tímabil og svo virðist sem hann hafi færst neðar á blaði Zinedine Zidane. Hann var ónotaður varamaður í gær.
Lucas Vazquez og Isco voru í byrjunarliðinu og Bale horfði á þegar Marco Asensio og Karim Benzema voru settir inn af bekknum.
„Að hann hafi ekki spilað neitt í leiknum er stór yfirlýsing. Hann gæti verið á förum í sumar," segir Ferdinand og Lampard tekur undir það: „Hlutirnir eru að fara að breytast í sumar."
Athugasemdir