Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. apríl 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Evrópudeildin í dag - Eini möguleiki Wenger
Wenger stefnir á að kveðja með titli.
Wenger stefnir á að kveðja með titli.
Mynd: Getty Images
Undanúrslitin í Evrópudeildinni byrja að rúlla í kvöld.

Arsene Wenger stefnir á að kveðja Arsenal með titli. Eini möguleiki hans á því að vinna titil áður en hann kveður félagið er með því að vinna bera sigur úr býtum í Evrópudeildinni.

Það verður strembið fyrir Arsenal að gera það í ljósi þess að Atletico Madrid er mótherjinn í undanúrslitum.

Fyrri leikur Arsenal og Atletico er í kvöld á Emirates-vellinum í Lundúnum. Arsenal þarf að ná í góð úrslit í kvöld.

Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Hinn leikur kvöldsins á milli Marseille og Salzburg er einnig sýndur beint, á Stöð 2 Sport 3.

Báðir leikirnir hefjast 19:05.

Leikir kvöldsins:
19:05 Marseille - Salzburg (Stöð 2 Sport 3)
19:05 Arsenal - Atletico Madrid (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner