Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. apríl 2018 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hjörtur í liði umferðarinnar - Langbesti varnarmaðurinn
Mynd: Superliga
Hjörtur Hermannsson var valinn í lið umferðarinnar í danska boltanum eftir 4-3 sigur Bröndby gegn Nordsjælland.

Hjörtur og félagar fengu vissulega þrjú mörk á sig, en Hjörtur gerði sigurmarkið mikilvæga.

Bröndby er með fimm stiga forystu á toppinum eftir sigurinn og fékk Hjörtur 8 í einkunn fyrir sinn þátt í leiknum.

Nicolai Boilesen, leikmaður Kaupmannahafnar, og Björn Kopplin, leikmaður Hobro, voru einnig valdir í varnarlínuna en fengu undir 6 í einkunn.

Kasper Fisker og Teemu Pukki, samherjar Hjartar, voru einnig í liði umferðarinnar sem er hægt að sjá með að smella á myndina hér til hliðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner