Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. apríl 2018 06:00
Elvar Geir Magnússon
Ívar Orri dæmir leik Vals og KR
Ívar Orri verður með flautuna á Hlíðarenda.
Ívar Orri verður með flautuna á Hlíðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur opinberað það að Ívar Orri Kristjánsson muni dæma stórleik Vals og KR í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla á föstudagskvöld.

Ívar hefur vaxið mikið sem dómari og var einn besti dómari Pepsi-deildarinnar í fyrra. Hann er í hópi íslenskra milliríkjadómara.

Sjá einnig:
Líkleg byrjunarlið Vals og KR

Tveir reyndir aðstoðardómarar verða með Ívari á leiknum; Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon.

Á sama tíma á föstudagskvöld fer fram leikur Stjörnunnar og Keflavíkur. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir þann leik en hann var valinn besti dómarinn í fyrra.

föstudagur 27. apríl
20:00 Valur-KR (Valsvöllur)
20:00 Stjarnan-Keflavík (Samsung völlurinn)

laugardagur 28. apríl
14:00 Breiðablik-ÍBV (Kópavogsvöllur)
14:00 Grindavík-FH (Grindavíkurvöllur)
16:00 Fjölnir-KA (Egilshöll)
18:00 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner