fim 26. apríl 2018 06:00
Magnús Már Einarsson
Minningarmót Ásgeirs Elíassonar
Mynd: Fram
Ásgeir Elíasson.
Ásgeir Elíasson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Knattspyrnufélagið Fram fagnar 110 ára afmæli sínu í ár. Á afmælisárinu hefur knattspyrnudeild Fram ákveðið að halda mót í minningu Ásgeirs Elíassonar sem er einn af dáðustu sonum Fram og íslenskrar knattspyrnu. Ennþá eru nokkur sæti laus á mótinu.

Ásgeir lék með Fram og íslenska landsliðinu við góðan orðstír um árabil. Alls lék hann 302 meistaraflokksleiki með Fram og 32 A-landsleiki í knattspyrnu fyrir Íslands hönd. Ásgeir var afreksmaður í fleiri íþróttum og lék líka landsleiki í handknattleik og blaki.

Ásgeir var þjálfari Fram á gullaldarárum félagsins 1985-1991 og vann liðið þrjá Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla undir hans stjórn á þessum árum. Ásgeir þjálfaði lið Fram aftur á árunum 1996-1999 og tímabilið 2006 með góðum árangri.

Ásgeir var landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu á árunum 1991-1995. Alls stýrði hann landsliðinu í 35 leikjum og náði góðum árangri. 12 leikir unnust, 8 lauk með jafntefli og 15 töpuðust.

Ásgeir kom víðar við en hjá Fram og íslenska landsliðinu á sínum þjálfaraferli. Hann þjálfaði ÍR, Víking Ólafsvík, FH og Þrótt og gat sér gott orð hvar sem hann kom.

Ásgeir var hvers manns hugljúfi og mikils metinn í knattspyrnusamfélaginu á Íslandi. Hann var óumdeildur og
naut virðingar fyrir sín störf og hlýlegt viðmót.

Minningarmótið verður haldið á gervigrasvelli Fram í Safamýri laugardaginn 12. maí.

Upphitun hefst með reitabolta kl. 13:30. Mótið sjálft stendur svo frá kl. 14:00-17:00

Leikið verður í 6 manna liðum en fjöldi varamanna ótakmarkaður. Leikið verður í riðlakeppni, undanúrslitum og til úrslita. Aldurstakmark er 30 ár.

Sérstök dómnefnd velur úrvalslið mótsins og besta leikmanninn.

Sigurliðið fær þann heiður að varðveita glæsilegan farandbikar í eitt ár.

Að móti loknu eða kl. 18:00 hefst kvöldverður og skemmtidagskrá í veislusal Fram í Safamýri.

Verð á hvern leikmann er kr. 6.900-. Innifalið í verðinu er mótsgjald, fordrykkur og kvöldverður (300g af úrvalskjöti beint af grillinu ásamt góðu meðlæti).

Skráning liða fer fram á [email protected].
Athugasemdir
banner
banner