Jökull Andrésson, 16 ára gamall markvörður Reading í Englandi, er magt til lista lagt.
Hann er gífurlega efnilegur markvörður en hann er líka góður í Rubik-kubba.
Heimasíða tengd Reading tók viðtal við Jökul og aðra leikmenn og vildi hvort leikmenn hefðu einhverja leynda hæfileika eða væru góðir í einhverju öðru en fótbolta. Jökull nefndi að hann væri góður í að leysaR ubik-kubba þrátt fyrir að hafa ekki reynt lengi fyrir sér í þeim fræðum.

Jökull sagðist geta leyst kubbinn á innan við tveimur mínútum og þurfti að standa við stóru orðin fyrir framan þjálfara og leikmenn.
Afraksturinn er í spilaranum hér að ofan.
Jökull er 16 ára en fyrr í þessum mánuði lék hann sína fyrstu leiki með U23 ára liði Reading.
Í fyrra samdi Jökull, sem er uppalinn hjá Aftureldingu, við Reading en bróðir hans Axel Óskar Andrésson hefur verið hjá félaginu frá 2014.
Arsenal vildi fá Jökul í sínar raðir í fyrra þar sem félagið taldi hann einn af þremur bestu ungu markmönnum í Englandi. Hann ákvað hins vegar að hafna samningi frá Arsenal og semja við Reading.
Jökull hefur leikið með yngri landsliðum Íslands en hann er nýbyrjaður að spila aftur eftir erfið meiðsli.
Athugasemdir