Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 26. apríl 2018 09:40
Magnús Már Einarsson
Sky: Real Madrid ekki haft samband vegna Salah
43 mörk á tímabilinu.
43 mörk á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur ekki haft samband við Liverpool til að reyna að kaupa Mohamed Salah samkvæmt frétt Sky í dag.

Í slúðurpakka dagsins kom fram að Liverpool ætli að hafna öllum tilboðum frá Real í Salah í sumar og að félagið verðmeti hann á 200 milljónir punda í dag.

Samkvæmt frétt Sky hefur Real hins vegar ekki haft samband við Liverpool vegna leikmannsins.

Salah hefur slegið í gegn hjá Liverpool síðan hann kom frá Roma á 34 milljónir punda í fyrrasumar en hann hefur skorað 43 mörk á tímabilinu.

Egyptinn á ennþá fjögur ár eftir af samningi sínum við Liverpool og félagið hefur engan áhuga á að selja hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner