Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 26. maí 2013 16:23
Magnús Már Einarsson
3.deild: Fjarðabyggð skoraði sigurmark í viðbótartíma
Sveinn Fannar skoraði fyrra mark Fjarðabyggðar.
Sveinn Fannar skoraði fyrra mark Fjarðabyggðar.
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Fjarðabyggð sigraði Grundarfjörð 2-1 á útivelli í eina leik dagsins í 3. deild karla.

Jerson Dos Santos skoraði sigurmarkið í viðbótartíma en þá voru heimamenn búnir að missa Tryggva Hafsteinsson af velli með rautt spjald.

Fjarðabyggð er með sex stig eftir þrjá leiki í 3. deildinni en Grundarfjörður er með þrjú stig eftir tvo leiki.

Grundarfjörður 1 - 2 Fjarðabyggð
0-1 Sveinn Fannar Sæmundsson ('45)
1-1 Aron Baldursson ('68)
1-2 Jerson Dos Santos ('92)
Rautt spjald: Tryggvi Hafsteinsson (Grundarfjörður) ('79)
Slapp
banner