Heimild: Soccerway
Carlo Ancelotti segir að hann vilji fara frá frönsku meisturunum í Paris Saint Germain en það komi því ekkert við að Real Madrid er að fara að leita sér að nýjum þjálfara.
Ancelotti tilkynnti forráðamönnum PSG að hann vilji rifta samningi við félagið ári áður en samningur hans hljóðar upp á. Spænska stórliðið hefur staðfest að Jose Mourinho sé á förum og Ancelotti er sterklega orðaður við félagið.
,,Ég veit ekki hvort þeir skildu það eða ekki, en þeir skildu að ég vildi fara frá PSG," sagði Ancelotti.
,,Real Madrid kemur þessu ekkert við. Þetta er á milli mín og félagsins. Ég vil hætta. Ef félagið samþykkir það þá get ég hætt. Ef félagið samþykkir það ekki þá get ég ekki farið og verð áfram þjálfari á næstu leiktíð."


