Heimild: BBC
Arjen Robben var hæstánægður með sigurmark sitt fyrir FC Bayern gegn Borussia Dortmund í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Robben hafði áður tvívegis tapað úrslitaleik Meistaradeildarinnar auk þess sem hann tapaði í úrslitaleik HM með Hollendingum árið 2010.
Robben hafði áður tvívegis tapað úrslitaleik Meistaradeildarinnar auk þess sem hann tapaði í úrslitaleik HM með Hollendingum árið 2010.
,,Þú vilt ekki vera stimplaður sem tapari. Það voru vonbrigði á síðasta ári en ég tapaði líka á HM. Þetta voru þrír úrslitaleikir," sagði Robben.
,,Ég var ekki undir svo mikilli pressu. Ég reyndi að nýta orkuna á jákvæðan hátt. Ég gat ekki byrjað að hugsa neikvætt, annars hefði þetta orðið of erfitt."
,,Í kvöld skoraði ég sigurmarkið. Við náðum þessu og getum gleymt öðrum hlutum."



