Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
   sun 26. maí 2013 23:33
Fótbolti.net
Ási Arnars: Stimpluðum okkur inn í bullandi botnbaráttu
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fótbolti.net náði tali af Ásmundi Arnarssyni, þjálfara Fylkis, eftir skellinn gegn Þór. Ásmundur var að vonum gríðarlega svekktur með úrslit leiksins.

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði í dag. Fyrri hálfleikur byrjaði kannski allt í lagi. Svo kom þarna kafli þar sem að við missum aðeins dampinn. Erum flatir og út úr stöðum. Þeir skora mark á okkur og sleppa í gegn. Rautt spjald og þrátt fyrir það erum við ekkert ólíklegri en þeir í fyrri hálfleiknum. Við sköpum okkur fjögur, fimm fín færi og það er grátlegt að ná ekki að skora á þá í þeirri stöðu.“

„Í seinni hálfleik ætlum við náttúrulega að reyna að koma til baka. Sýna þolinmæði og þétta raðirnar en það gerðist ekki. Menn voru út úr stöðum og eins og villuráfandi sauðir á köflum. Varnarleikurinn var heilt yfir barnalegur á köflum í seinni hálfleik og því fór sem fór.“


Eftir tapið sitja Fylkismenn í ellefta og næstneðsta sæti Pepsi-deildarinnar með 2 stig eftir fimm fyrstu umferðirnar.

„Við stimpluðum okkur inn í bullandi botnbaráttu með þessari niðurstöðu í dag og þar erum við og fyrir því þurfum við að berjast eins og staðan er. Það eru mörg stig í pottinum ennþá en þetta er eins og hlutirnir líta út núna og það er okkar að reyna að vinna úr því,“ sagði vonsvikinn Ásmundur að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner