Fylkir og Þór mætast í 5. umferð Pepsi-deildarinnar klukkan 20:00 á Fylkisvelli. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í botnbaráttu deildarinnar. Fylkir er í 11. sæti og því næst neðsta með aðeins tvö stig úr fyrstu fjórum leikjunum en Þór sæti fyrir ofan með þrjú stig.
Byrjunarliðin hjá báðum liðum eru klár en Andrés Már Jóhannesson er kominn í leikmannahóp Fylkis í fyrsta sinn í sumar eftir að hafa komið frá Haugesund á láni en hann kom meiddur.
Byrjunarliðin hjá báðum liðum eru klár en Andrés Már Jóhannesson er kominn í leikmannahóp Fylkis í fyrsta sinn í sumar eftir að hafa komið frá Haugesund á láni en hann kom meiddur.
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 2-2 jafnteflinu við Keflavík í síðustu umferð. Árni Freyr Guðnason, Oddur Ingi Guðmundsson og Pablo Punyed sem er fótbrotinn fara út og inn koma þeir Heiðar Geir Júlíusson, Kristján Páll Jónsson og Andri Þór Jónsson.
Hjá Þór er stærsta breytingin sú að Srdjan Rajkovic kemur í markið fyrir Joshua Wicks sem er á fæðingardeildinni og 17 ára drengur, Hristo Petrov Slavkov er varamarkvörður. Liðið vann Víking Ólafsvík 1-0 í síðustu umerð og frá þeim leik er Baldvin Ólafsson kominn á bekkinn fyrir Andra Hjörvar Albertsson.
Fylkir::
1. Bjarni Þórður Halldórsson (m)
4. Finnur Ólafsson
5. Davíð Þór Ásbjörnsson
6. Heiðar Geir Júlíusson
7. Kristján Páll Jónsson
9. Tryggvi Guðmundsson
16. Tómas Joð Þorsteinsson
20. Sverrir Garðarsson
23. Viðar Örn Kjartansson
26. Andri Þór Jónsson
29. Ásgeir Eyþórsson
Varamenn:
32. Kristján Finnbogason (m)
8. Árni Freyr Guðnason
15. Hákon Ingi Jónsson
18. Andrés Már Jóhannesson
19. Oddur Ingi Guðmundsson
24. Elís Rafn Björnsson
34. Egill Trausti Ómarsson
Þór:
1. Srdjan Rajkovic (m)
4. Andri Hjörvar Albertsson
6. Ármann Pétur Ævarsson
7. Jóhann Þórhallsson
10. Sveinn Elías Jónsson
11. Orri Freyr Hjaltalín
12. Edin Beslija
14. Hlynur Atli Magnússon
15. Janez Vrenko
28. Chukwudi Chijindu
30. Mark Tubæk
Varamenn:
32. Hristo Petrov Slavkov (m)
2. Baldvin Ólafsson
3. Guiseppe P Funicello
5. Atli Jens Albertsson
9. Jóhann Helgi Hannesson
13. Ingi Freyr Hilmarsson
19. Sigurður Marinó Kristjánsson


