Sáttur við að halda hreinu.
Einar Hjörleifsson var kominn á "sinn" stað á Ólafsvíkurvelli í kvöld, í markinu hjá heimamönnum og hann var nokkuð sáttur í leikslok.
"Það var margt jákvætt, t.d. það að við vorum rosalega sterkir varnarlega, þeir eiga voðalega lítið, eitthvað svona happa glappa. Alltaf að dæla upp á Gunna en lítið meira. Hálfgerð púðurskot"
Einar taldi stig kvöldsins vera fínan stökkpall.
"Stig er stig."
Einar var ekki sammála Eyjamönnum um það að ÍBV hefði átt að fá víti í kvöld.
"Víðir er kominn með takkaskóinn upp í bringu á hinum. Ég er enginn dómari, en kalt mat er að hann (dómarinn) sleppti augljósu víti hinum megin svo þetta kemur út á sléttu"
Um það að vera kominn í mark Víkings á ný sagði Einar:
"Ég var í markinu í dag og síðast en það er ekkert gefið í þessu. Ég held mínu striki, æfi vel og held haus".
Nánar er rætt við Einar í viðtalinu sem fylgir fréttinni.























