Bayern stefnir á þrennuna.
Leikmenn Bayern München eru komnir aftur heim frá London með Meistaradeildarbikarinn meðferðis eftir 2-1 sigur á erkifjendunum Borussia Dortmund í úrslitaleiknum í gær.
Eftir tvær misheppnaðar tilraunir til að vinna úrslitaleikinn á síðustu þremur árum tókst liðinu loksins að hampa bikarnum í fyrsta sinn í 12 ár.
Eftir tvær misheppnaðar tilraunir til að vinna úrslitaleikinn á síðustu þremur árum tókst liðinu loksins að hampa bikarnum í fyrsta sinn í 12 ár.
Leikmenn og starslið Bayern fagnaði titlinum vel í nótt, fyrst í veislusal og síðan á hótelinu í London og í München fögnuðu 40 þúsund stuðningsmenn fram á rauða nótt.
En þegar leikmenn Bayern lentu í München í dag fengu stuðningsmenn ekki að fagna hetjunum. Leikmennirnir stigu úr vélinni með bikarinn í höndunum og komu sér strax fyrir í liðsrútunni. Þaðan héldu leikmennirnir til síns heima og verða engin fagnaðarlæti í dag um götur München.
Félagið vill ekki trufla einbeitinguna fyrir úrslitaleikinn í þýska bikarnum um næstu helgi þegar Bayern mætir Stuttgart þegar nýkrýndir Evrópumeistarar geta tryggt sér þrennuna.
,,Þetta er fullkomið tímabil, og við getum klárað það í næstu viku. Ef við vinnum bikarúrslitin þá vinnum við þrennnuna, það er markmiðið," sagði Arjen Robben, sem skoraði sigurmarkið í gær.
,,Ég er mjög stoltur, stoltur að vera hluti af liðinu og loksins að vinna Meistaradeildina, þetta er draumur sem varð að veruleika."
Thomas Müller vill vinna bikarinn fyrir þjálfarann Jupp Heynckes sem hættir með liðið í sumar og mun mögulega ljúka ferlinum.
,,Auðvitað munum við njóta þess að hafa unnið Meistaradeildina, sérstaklega því við vorum svo nálægt því í fyrra. En við viljum halda áfram og vinna bikarinn fyrir stjórann," sagði Thomas Müller.
,,Hann hefur átt frábæran feril og þetta yrði fullkomin leið til að ljúka honum."
Jupp Heynckes hefur aldrei unnið þýska bikarinn sem þjálfari.
Hér að neðan má sjá myndir frá flugvellinum í München í dag.




