Radamel Falcao, framherji Atletico Madrid, mun ganga í raðir Monaco á morgun samkvæmt fréttum frá Spáni í dag.
Talið er að Monaco borgi 60 milljónir punda fyrir Falcao en hann mun sjálfur fá 12 milljónir evra í árslaun.
Monaco endurheimti sæti sitt í frönsku úrvalsdeildinni á dögunum en það er nóg til hjá félaginu eftir að rússneski milljarðamæringurinn Dmitry Rybolovlev tók við stjórnvölunum.
Fyrir helgi komu Joao Moutinho og James Rodriguez til Monaco frá Porto á samanlagt 70 milljónir evra.
Falcao mun líklega leika sinn síðasta leik með Atletico Madrid þegar liðið mætir Mallorca í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í dag.




