Eysteinn Húni Hauksson fékk aðeins einn réttann þegar hann spáði í fjórðu umferð.
En það er Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður sem spáir í leiki fimmtu umferðar sem leikin er á sunnudag og mánudag.
En það er Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður sem spáir í leiki fimmtu umferðar sem leikin er á sunnudag og mánudag.
Víkingur Ó. 1-1 ÍBV (18:00 í kvöld)
Eyjamenn hafa komið allra liða mest á óvart en ég held að Ólafsvíkingarnir nái stigi á heimavelli í þessum leik.
Valur 2-1 Keflavík (19:15 í kvöld)
Valsmenn eru sterkari en reiknuðu með og eru öflugir á heimavelli. Keflvíkingarnir eru hins vegar með ungt og skemmtilegt lið á köflum þegar þeir ná sér á strik. En eftir tvö jafntefli í röð hjá Val held ég að þeir knýji fram sigur í þessum leik.
FH 2-0 ÍA (19:15 í kvöld)
FH-ingar eru náttúrulega með besta leikmann deildarinnar til þessa, Björn Daníel Sverrisson, hann hefur verið að mata félaga sína og þetta verður öruggur sigur FH-inga í Krikanum. Ég er alveg viss um að það sé komið að Atla Viðari að skora og svo náttúrulega miðvörðurinn síungi, Freyr Bjarnason, menn bíða eftir marki frá honum og hann setur eitt.
Fylkir 2-1 Þór (20:00 í kvöld)
Bæði lið hafa verið í vandræðum í upphafi mótsins og Þórsararnir hafa nú ekki verið sannfærandi. Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórsara hefur aðallega talað um hvað sérfræðingarnir hafa verið vondir við þá. En ég held að nú sé komið að því að Fylkir vinni sigur og Tryggvi skorar að minnsta kosti eitt
Fram 1-0 Stjarnan (19:15 mánudag)
Framararnir eru betri en menn halda, þeir eru þéttir til baka. Stjörnumenn eru stjörnum prýddir og eru með gríðarlega vel mannaða sveit, frábært lið en ég spái mjög óvæntum úrslitum á Laugardalsvelli með einu marki gegn engu
KR 3-1 Breiðablik (20:00 mánudag)
KR-ingarnir eru bestir þessa dagana, þeir eru með gríðarlega öflugt lið, mikla leikreynslu og Blikarnir þurfa að gera betur en þeir hafa verið að gera í síðustu leikjum en þeir eru hins vegar ekki nógu góðir til að vinna KR í Frostaskjóli og þetta er öruggur sigur KR-inga í vesturbænum og Marka-Baldur mun skora enn eitt markið í deildinni.
Eldri spámenn:
Hans Steinar Bjarnason (4 réttir)
Tómas Þór Þórðarson (4 réttir)
Þórhallur Dan Jóhannsson (3 réttir)
Eysteinn Húni Hauksson (1 réttur)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |



