Var ekki hræddur um að fá rautt spjald í fyrri hálfleik
Gunnar Þorsteinsson leikmaður ÍBV var allt annað en sáttur með að fá ekki dæmt víti í seinni hálfleik í leik kvöldsins í Ólafsvík.
"Það sáu allir á vellinum að þetta var víti þegar Farid sparkaði Víði niður, ég er viss um að Víkingarnir prísa sig sæla"
"Það sáu allir á vellinum að þetta var víti þegar Farid sparkaði Víði niður, ég er viss um að Víkingarnir prísa sig sæla"
Gunnar hefði viljað öll stigin í kvöld.
"Ég myndi sega að þetta væru tvö stig töpuð frekar en eitt unnið því þeir voru án stiga fyrir leikinn. En fair play, þeir gerðu það sem þeir vildu og leikplanið þeirra gekk upp"
Gunnar lýsir einnig í meðfylgjandi viðtali skoðun sinni á Ólafsvíkurvelli auk þess að ræða um tæklinguna sína á gulu spjaldi sem margir í áhorfendastúkunni vildu meina að hefði átt að vera seinna gula og rautt.























